líkamlega og andlega
13.maí 2006 | 10:03
Skrifað af Ó. | Er að hlusta á In Flames - Jotun | Skráð undir Almennt

Hér kemur statusinn á lífi ólafs þann 13.5.06:

1. framkvæmdir eru hafnar við gerð íbúðar á neðri hæðinni
2. er semi fluttur i ghettoið/breiðholtið til B á meðan
3. nýja vinnan lofar góðu

og svo er hér frétt úr Morgunblaðinu 8.5.2006:

Leti sögð vera holl
Komið hefur í ljós við rannsóknir vísindamanna að eitt besta ráðið við streitu er að temja sér hæfilegan skammt af leti, segir í frétt danska blaðsins Jyllandsposten. "Vandinn er bara að Danir líta á það sem merki um bjánaskap að vera latur og taka sér pásur í vinnutímanum," segir Thoms Milsted sem er fræðimaður hjá Streiturannsóknastöðinni dönsku. "Streitulosun er því í andstöðu við menningu okkar." Tölur frá danskri ríkisstofnun sem rannsakar almannaheilbrigði benda til þess að 44% Dana finni oft eða stundum fyrir streitu. "Leti eykur framleiðslu ákveðinna efna sem vinna gegn streitu," segir Milsted. "Púlsinn lækkar, hjartað slær ekki jafn hratt og þrýstingurinn lækkar þegar maður liggur í leti. Fólk getur því í reynd varist streitu með því að leyfa sér markvisst að liggja öðru hverju í leti og byggja sig þannig upp á ný." Segir hann að fólk geti til dæmis lagst í sófa í tuttugu mínútur og slakað algerlega á, bæði líkamlega og andlega.

egó
15.apr. 2006 | 05:00
Skrifað af Ó. | Er að hlusta á óstöðugt tölvusuð | Skráð undir Almennt

gossip tók eftir eftirfarandi á huga.is:

Olympus 14. apríl 2006 - 14:47:48

lennti í bílslysi þegar ég var að keyra með 4 vini mína í eftirparty eftir oktoberfest MS á pravda. Gerðist þannig að við vorum á rauðu ljósi og einhverjar stelpur í bíl við hliðin á okkur og við fórum í svona "spyrnu" og svo eftir að hafa keyrt sæbrautina á fullu var eg að fara beygja á afrein en þar sem hún var sjúklega sleip gat ég ekki hægt á mér(var á svona 80) missti ég stjórn á bílnum rann einhverja 100m stjórnlaust þar sem ég fór meðal annars upp í innkeyrslu og eyðilagði þar einn bíl þar og fór smá utan í annan og svo negldi ég á ljósastaur.
Engin meiddist alvarlega en sá sem kom verst út úr þessu mundi ekkert eftir þessu og var aumur í vinstri hendina(þar sem ljósastaurin fór á bílin) í einhvern tíma.

þarna er greinilega efni í mikinn hugari að skrifa um þegar hann negldi á bílana okkar í fyrra ...... og svo smelli ég notandann og hvað sé ég:

Notandanafn: Olympus
Aldur: 18
Kyn: Karlkyns
Stig: 1.097
Síðasta tenging: 16. apríl - 00:18
Heimasíða: http://kasmir.hugi.is/Olympus
Staðsetning: Olympus er á Egó

 

 

 

 

aha, einmitt það sem ég hugsaði......

The private sector....
31.mar. 2006 | 07:20
Skrifað af Ó. | Er að hlusta á kalla | Skráð undir Almennt
...er að fara að njóta starfskrafta ó aftur, er sem sagt að kveðja fasteignamatið og hefja störf hjá veflausnafyrirtækinu annað veldi.
Which Deadly Sin Is Yours?

Which Deadly Sin Are You

Greed

In the immortal words of Gordon Gecko 'Greed is good', words you live by. Wether it's money, fame or something else, you want it all

Find out your Deadly Sin at Quizopolis.com
thus:
How Will I Die Quiz

How Will I Die Quiz

You will die at the age of 68

You will die in a freak accident with a stripper pole

Find out how you will die at Quizopolis.com

Quizopolis
the best dirt is in the country.....
18.feb. 2006 | 05:22
Skrifað af Ó. | Er að hlusta á steve vai-building the church | Skráð undir Almennt

fór um siðustu helgi í bústað og var dvölin þar hin fínasta fyrir utan vonbrigðin að hafa ekki horft á opnunarhátið ólympíuleikana að því virtist vera vegna bilaðs loftnets, kom síðan í ljós að einhver hafði sýnt ótrúlegan kulda og tekið loftnetið úr sambandi þannig að sambandið rofnaði en let þó það tolla í stunguna í þeim eina tilgangi að meina mér aðgangi að smá upplifun með heimsþorpinu. Einnig var ég með smá harðsperrur í kinnum eftir að hafa klárað einn þykkasta sjeik sem ég hef fengið, fékkst sá í borganesi og held ég að það hafi tekið á annan hlukkutíma að klára kvikindið........ en góður var hann

hef oft haft það á tilfinningunni að ég hafi fæðst 1 júli en ekki daginn á undan, official tíminn er víst 23.55 þann 30 júni en þar sem það var jú mikið um að vera þegar ég kom í þennan heim held eg að einhver hafi gert smá mistök þarna og hér er sönnunin:
Your Birthdate: June 30
You have the type of personality that people either love or hate.
You're opinionated, dramatic, intense, and very outspoken.
And some people can't get enough of you - they're totally addicted.
Others, well, they wish you were a little more reserved.

Your strength: Your flair

Your weakness: If you think it, you say it

Your power color: Scarlet red

Your power symbol: Inverted triangle

Your power month: March
Your Birthdate: July 1
You are a natural born leader, even if those leadership talents haven't been developed yet.
You have the power and self confidence to succeed in life, and your power grows daily.
Besides power, you also have a great deal of creativity that enables you to innovate instead of fail.
You are a visionary, seeing the big picture instead of all of the trivial little details.

Your strength: Your supreme genius

Your weakness: Your inappropriate sensitivity

Your power color: Gold

Your power symbol: Star

Your power month: January
Ísland er í neðsta sæti.......
11.jan. 2006 | 08:41
Skrifað af Ó. | Er að hlusta á fólk að skúra | Skráð undir Almennt

.........sagði upplýsingafulltrúi unicef á íslandi margoft í hádegisviðtali á nfs um daginn þegar hún talaði um að ísland hefði verið í 1. sæti eða EFST á listanum yfir lífslíkur barna eða eh álíka, svo reyndi fréttamaðurinn að snúa þessu við en hún endurtók það aftur og allt varð vandræðalegt.........þá skipti ég um stöð. Fyrst við erum að tala um Nýju FréttaStöðina þá er nafnið ekki að gera sig og ekki heldur allt 'lúkk' á stöðinni...... og svo er textabannerinn neðst á skjánum með asnalega fáum fréttum.....

En nóg um einhver leiðindi og fyrst að þetta er fyrsta eða neðsta færsla ársins er tilvalið að doka við og líta yfir farinn veg. Árið 2005 var eitt það besta sem Ólafur hefur upplifað, kynntist m.a áhugaverðu fólki, lauk námi um vorið, komst á dúndur faratæki um sumarið og ekki versnaði ástandið þegar leið á haustið.......vona að 2006 verði svipað, allavegna lofar byrjunin á því góðu....

Og hvað er svo í gangi með 'hvernig væri nú að slaka á ensku slettunum hérna' könnunina, allt í einu er 3svar búið að kjósa vitlauzt

Um vókið

Vókið er vefsetur Ólafs Brjáns Ketilssonar. Ólafur (eða Ó eins og hann vil kalla sig hér í óþökk konu sinnar) býr í Reykjanesbæ ásamt eiginkonu og börnum.

Brosmildur,einlægur og misskilinn að eigin sögn, Ó hefur gaman að gönguferðum, tónlist og annari mannrækt.

Kannanir

Hvernig finnst þér nýja síðan?



Atburðir