brrrrrr
18.jan. 2007 | 07:07
Skrifað af Ó. | Er að hlusta á vinnufélaga...... | Skráð undir Almennt
jæja, hvað hefur gerst síðan síðast:
  1. b+ó trúlofaðu sig á hrekkjavöku/afmæli henni brynhildar
  2. b+ó fluttum í íbúðina þegar fyrsta herbergið varð íbúðarhæft í henni, til lukku var það svefnherbergið, svo fengum við wc og vask tengd á jóladag og hver veit, kannski kemst sturtan í gang í dag...
  3. ó maxaða visa kortið sitt í elkó af öllum stöðum við kaup á heimilistækjum
  4. er með tvö vefi í vinnslu, bið fólk samt að hafa hljótt um það ef það rekst á eitthvað ferskt hérna
  5. vókið varð 1000 daga gamalt og hefur það verið uppfært aðra hvora viku.... að meðaltali zko
  6. ó er búinn að fá nóg af setjast upp á kalda bíla, hann vill fá bílskúrinn aftur eða hlýnandi veðurfar, veðja nú á veðrið
  7. annars er allt gott að frétta, fyrir utan nýjasta æðið hjá nánustu fjölskyldu að skamma ó fyrir allt sem miður fer sem ég næ ekki alveg......en það er líklega bra ég

b
6.okt. 2006 | 08:10
soft Ó. | Er að hlusta á útvarp sögu í fjarska | Skráð undir Almennt
fannst kominn tími til að ég tileinki færslu henni brynhildi ástu minni hérna á vókinu.

mín

ég gæti skrifað ritgerð um hvað hún sé sæt, góð og skemmtileg en þar sem ég er latari/bældari en flestir aðrir ætla ég að sleppa því hér og þakka henni í staðinn opinberlega fyrir fyrsta árið okkar af mörgum. við náðum saman þökk sé nútima tækni, "illa" hönnuðu lyklaborði á sony-ericsson síma, menningarnótt 2005 og jú, einskæri heppni af minni hálfu sem ég hugsa oft til á næturnar þegar ég þarf að vernda hana gegn vondum snjóköllum og öðrum óværum sem virðast ekki vilja láta hana í friði........ alveg eins og ég.

jæja...
21.sep. 2006 | 06:12
Skrifað af Ó. | Er að hlusta á miðbæinn | Skráð undir Almennt

.....þá er mar kominn úr vókfríinu og er þetta það helsta sem gerst hefur:

tók 2 vikna frí(frá vinnu), byrjaði með að fara í viku með b í bústað í góðu yfirlæti, þótt gamanið hafi verið aðeins of mikið fyrsta kvöldið fyrir gamla hafði ég náð góðum bata þegar leiðin lá seinni vikuna til krít(ar), satt best að segja leist mér ekki alveg á blikuna fyrst þegar tók á móti okkur úr vélinni 'krítisk' kvenkyns official með allt of stórt ego og allt of stór sólgleraugu sem leiddi túristana(í hitasjokki) eins og búfénað í rútunar. Batnaði samt ástandið fljótlega um leið og komið var út úr tollinum, þegar ég kannaðist við fyrsta andlitið sem ég sá sá, var þar mætt guðrún erla, frænka bræðrana úr keiló sem ásamt félögum sáu um farastjórn. Við reyndar nýttum okkur farastjórnina lítið enda eins og alltaf líður okkur best að stjórna ferðinni sjálf. Dvölin var mjög góð, mikið borðað, drukkið og slakað á. Reyndar kom mér á óvart standardinn á öllu þarna(fyrir utan þröngar lagnir sem þýðir engan klósett pappir í klósettið) og ekki spillti veðrið fyrir,hitinn var milli 40 og 50 stig og sól frá morgni til kvölds, b varð fagurbrún en ég varð einkennilega spotty, hefði þurft aðra viku sko.....

status a kleppsvegi 86b er:
það er m.a komið steypt gólf sem er jú áfangi og öll hurðagöt líka, búið er að panta glugga og hurðir svo leit meira að segja píparinn við í gær.... næstu skref eru að skera fyrir gluggum og að flota gólfið...

ný maiden plata er kominn út í fyrsta sinn sem maiden lenda á billboard top 10 listanum, gott stuff og kikka 'strákanir' meira að segja aðeins meiri butt núna en oft áður

zniffz, Schu erað hætta eftir þetta tímabil , spurning hvort það verði til þess að maður hætti að fylgjast með sportinu eða haldi bra með kimi í staðinn

OG vegna óvæntrar pressu ætlar ég að gera nytt ofur vók fyrir áramót, verður það þannig úr garði gert að þeir sem hafa áhuga geti fengið sér sitt eigið vók u lucky ppl....

þangað til næst....
ólstöður........
21.jún. 2006 | 11:31
Skrifað af Ó. | Er að hlusta á Umhverfishljóð | Skráð undir Almennt

í dag er lengsti dagur ársins og þykir það mér tilefni til að bæta við færslu(kredit t) þótt ekki sé nú mikið að frétta,nema búið er að grafa út herbergið niðri(kredit listi birtist síðar) en þar sem það var smá klöpp undir rauðhólaefninu þarf að taka af henni áður en lengra verður haldið með framkvæmdir

annað var það ekki nema nýr msn messenger 8/ messenger live er kominn út með gagnlegum offline message fíduz, mæli með því....

666
6.jún. 2006 | 07:35
Skrifað af Ó. | Er að hlusta á suð | Skráð undir Almennt
Mar varð nú að setja inn færslu á þessum degi, mikið búið að gerast síðan síðast,halldór að hætta í stjórnmálum, byrjað að grafa út herbergið á neðri hæðinni með hjálp vina og ættingja og svo vann finnland verðskuldað í eurovision, nú get ég ekki beðið eftir næsta ári þegar allir koma með glys monster rokk atriði
eitt kalt vorkvöldið var ég að skreppa í vinnunna og þar sem ég er að leggja kem ég auga á mann skögrandi upp klapparstíginn með stefnuna á sirkus með hönd í fatla og auðsjáanlega illa farinn eftir eitthvað, eftir nokkrar sek. átta ég mig á að þetta var gamli vinur minn hann gylfi(kimono, opus dei), kominn til landsins greinilega efir útrásina, fyrstu viðbrögð mín urðu auðvitað að fá hláturskast á meðan hann beið þolinmóður eftir að fá að útskýra að hann hafði lent í hörðum árekstri á reykjanesbraut þennan sama dag og bætti við í lokinn að sér findist athyglisvert að viðbrögð íslendinga hefðu öll verið eins á meðan útlendingar hefðu verið sýnt sér ekkert nema samúð..........
hér er svo frásögnin af slysinu mbl style:

Innlent | mbl.is | 22.5.2006 | 16:38
Níu fluttir á sjúkrahús eftir árekstur á Reykjanesbraut Tvær fólksbifreiðar skullu saman á Fitjum í Njarðvík í dag. Átta voru í annarri bifreiðinni og í hinni þrír. Sú sem ók austur Reykjanesbraut beygði í veg fyrir hina bifreiðina sem ók vestur Reykjanesbraut. Áreksturinn var mjög harður, níu voru fluttir á sjúkrahús í Keflavík og Reykjavík til aðhlynningar. Meiðsl virðast við fyrstu sýn ekki vera alvarleg en þó var einn væntanlega viðbeinsbrotinn.

Um vókið

Vókið er vefsetur Ólafs Brjáns Ketilssonar. Ólafur (eða Ó eins og hann vil kalla sig hér í óþökk konu sinnar) býr í Reykjanesbæ ásamt eiginkonu og börnum.

Brosmildur,einlægur og misskilinn að eigin sögn, Ó hefur gaman að gönguferðum, tónlist og annari mannrækt.

Kannanir

Hvernig finnst þér nýja síðan?



Atburðir