rats...
15.apr. 2004 | 14:13
Skrifað af Ó. | Er að hlusta á Testament - Troubled Dreams | Skráð undir Almennt
nú er von á bróður mínum heim á miðvikudaginn og verða þá fagnaðarfundir, gaman væri nú að vita hvort hann verður með mini-pocket með sér fyrir ó. en síðasta pokinn hér var einmitt kláraður í vikunni, fyrir þá sem ekki vita eru mini pocket örsmáar sterkar pylsur, ófáanlegar nema í þýskalandi held ég og eru algjört góðgæti eða ultimate-legal-high svo ég vitni nú í paul stanley.

mér til mikilar skelfingar rakst ég á þessa mynd:


og stafsett með öfugu K-i!!

á www.georgewbush.com þar sem ég var að kynna mér manninn, frekar ósvífið af bu$h og co að nota 'kids' til að ná endurkjöri en með að nota það hafa þeir félagar líklega tryggt sér sigur í nóvember

próf dagsins:

:: how jedi are you? ::
hef ákveðið að fjarlægja 'næsta færsla væntanleg' fídusinn, svo 'allir'sem koma hérna verða núna að athuga við og við og þar með bæta við heimsóknafjöldann því þetta snýst jú allt um hann...

lærði í dag að ég væri rotta skv. kínverskri stjörnuspeki....
don't do drugs kids.....
14.apr. 2004 | 05:57
Skrifað af Ó. | Er að hlusta á Soundgarden - Jesus Christ Pose | Skráð undir Almennt
Það voru eitt sinn hjón í Bandaríkjunum á níunda áratugnum(besti áratugurinn tónlistalega séð en það er efni í aðra færslu)sem fengu sér barnapíu svo þau gætu farið út. fengu stelpu sem hafði áður passað hjá þeim og þau kunnu ágætlega við. Fannst hún reyndar svolítið einkennileg þegar hún kemur í þetta skiptið en voru ekkert að velta sér upp úr því. seinna um kvöldið hringja hjónin heim til að checka á krakkanum og hvort hann sé ekki örugglega kominn í rúmið. Barnapían segir allt rólegt og gott, barnið komið í háttinn og að hún sé búin að setja kalkúninn í ofninn. "Hvaða kalkún?" spyrja þá hjónin forvitin.
þá hafði barnapían, sem var á sýru, sett barnið í ofninn þar sem henni fannst það vera kalkúnn.

hendi einu prófi með:

See what drug you are.
fékk ekki páskaegg
11.apr. 2004 | 14:06
Skrifað af Ó. | Er að hlusta á NIN- Were In This Together Now | Skráð undir Almennt
nema eitthvað lítið kríli sem telst ekki með...og ekkert annað að frétta. vil þakka írisi fyrir athugasemdinar í dag, allavegna einhver sem nennir að kommenta fyrir utan gossip, og endilega checkaðu á nine inch nailes og closer en það minnir mig að fuck you like... hafi heitið í bandaríkjunum, ákvað að nota upprunalega titilinn þar sem þessi vefur er jú óritskoðaður

hér er loks próf á íslensku, að vísu frekar gallað eins og lesendur munu taka eftir þegar kemur að 'skóla-hlutanum' en afgangurinn er svo sem réttur


Sjáðu hvaða týpa þú ert
Austrar
9.apr. 2004 | 06:17
Skrifað af Ó. | Er að hlusta á Iron Maiden - SSoaSS | Skráð undir Almennt
fyrst að það eru páskar og líka fyrir gossa er hér eitt prófið í viðbót:

I am Nothing!



Which Enemy of the Christian Church Are You?


Take More of Robert & Tim's Quizzes
Watch Robert & Tim's Cartoons


alltaf gott að fá svona staðfest

hér er mynd af Ó.(fjær) og the zipper(nær) í boði Ragnhildar frænku, finnst að Ó. ætti að raka sig og hinn ætti að fara í klippingu

datt í hug að setja upp wap-útgáfu af síðunni og bæta inn fídus fyrir að bjóða útvöldum gestavókurum að spreyta sig hér, geri það kannski eftir próf......
böl
7.apr. 2004 | 14:31
Skrifað af Ó. | Er að hlusta á Nine Inch Nails - Fuck You Like an Animal | Skráð undir Almennt
það hefur allt gengið á afurfótunum eftir að ég byrjaði með þessa síðu, hef fengið vírusa í mig og tölvuna ásamt innbrotinu í bílinn og svo fór einn af hörðudiskunum mínum í nótt sem leið, reyndar lán í ólani að diskurinn sem fór var backup diskurinn en samt núna er ó. án backups. trúi nú ekki á neitt sonna vúddú dót en gæti verið að þessi blessaða síða mín sé orsök allra þessa ófara...

fattaði svo að þjófanir sem brutust inn í ó-mobile tóku nær fullann pakka af risa ópali leið og þeir tóku húfuna góðu en skildu eftir alla geisladiskana sem voru í bílnum! greinilegt að þessir pörupiltar eiga í miklu meiri vanda en ég hélt því að ofan á allt saman þjást þeir af lélegum tónlistarsmekk greyin...
Um vókið

Vókið er vefsetur Ólafs Brjáns Ketilssonar. Ólafur (eða Ó eins og hann vil kalla sig hér í óþökk konu sinnar) býr í Reykjanesbæ ásamt eiginkonu og börnum.

Brosmildur,einlægur og misskilinn að eigin sögn, Ó hefur gaman að gönguferðum, tónlist og annari mannrækt.

Kannanir

Hvernig finnst þér nýja síðan?



Atburðir