12 mánuðir
29.ágú. 2008 | 16:00
Skrifað af Ó. | Er að hlusta á harðadiska snúast | Skráð undir Almennt

Kýldur, sparkað í, hlegið að, setið á höfðinu mínu, bitinn, pissað á og þaðan að verra........þetta er nokkur atriði sem hafa komið fyrir mig undanfarna 12 mánuði og ekki hefði ég viljað neitt annað. Hún Katla mín er sem sagt orðin eins árs og blómstrar sem aldrei fyrr, snjöll, skemmtileg og ákveðin, alveg eins og mamma sín og algjört krútt eins og pabbi sinn.

Katla Mist eins árs

Annars er voða lítið að frétta, eins og það sé furðuleg ró yfir öllu..........hmmm......

Fréttir!!!!!
31.maí 2008 | 16:00
Skrifað af Ó. | Skráð undir Fréttir

ÓlafssonBrynhildur Ásta og Ólafur Brjann eiga von á syni síðsumars.

Fjölskyldan er flutt í hafnarfjörðin. Nýja heimilið er herfræðilega staðsett milli kirkjugarðs og klausturs. Handhægt vegna þess að maður kveður jú þetta líf einhverntímann(og þá verður maður líklega grafinn þvert á óskir mínar) og vegna þess að mig grunar að ég muni snúast til kaþólsku á efri árum eða til að vera nákvæmari einmitt þegar hún Katla mín kemst á táningsaldurinn. held að stökkið yfir verði auðvelt því ég er þegar bældur með eindæmum, frekar íhaldssamur og nota greinilega ekki getnaðarvarnir, plús þegar ég horfi út um svenherbergisgluggann blasir við þessi risa kross, gulur á lit svona til áminningar.

Ég sagði upp hjá öðru veldi. Ástæðan var óyfirstíganlegur listrænn ágreiningur.

Hverjum hefði nú dottið í hug að nafni minn Grímsson yrði sjálfkjörinn sem forseti lýðveldisins!

Loksins er nýtt vók komið í loftið með diggri aðstoð Brynhildar, gert í .NET ásamt smá ajaxi á nokkrum stöðum. Og eins og með öll "flókin" kerfi leynast eflaust einhverjar villur hér og þar í byrjun. Sjáum til hversu duglegir vókarar verða að tilkynna þær....

Skírn, gifting og far vel fagra vók 1.0
11.jan. 2008 | 10:58
Skrifað af Ó. | Er að hlusta á cranky geeks | Skráð undir Almennt

Jæja, þá er komið að færslu enda hefur sitt hvað gerst síðan síðast.

baby ó hefur staðið sig eins og hetja og dafnað ótrúlega með hjáp mömmu sinnar og er orðin 5450 gr á þyngd og 57 cm á lengd. Skrýtið hvernig áherslur og forgangsröð geta breyst hjá manni. Allt í einu eru margvísleg líkamstarfsemi barnsins orðið aðal málið og að litla hafi það sem best.
Hef því miður ekki nógu gott vald á íslensku(né öðrum tungumálum) til að lýsa hvernig það er að vera pabbi, það er einfaldlega það besta!

Katla Mist

1 des var frumburðurinn skírður Katla Mist og tækifærið notað til að kvænast b í leiðinni
Eftir skírnar/brúðkaupsveisluna var svo barnið sent út í sveit með tengdó og við hjónin fórum heim og slökuðum á, opnaðar voru gjafir með hjálp smá cava og síðan var farið út að borða með kolla og unni. þar á eftir var síðan opið hús á efri hæðinni þar serm vinir og ættingjar söfnuðust saman og hélt fjörið áfram langt fram eftir nóttu......

(eftir að hafa lesið nokkrar andrésar andar syrpur á spítalanum eftir fæðinguna ákvað ég að lesa alvöru bók og varð villtu vinna miljarð varð fyrir valinu eftir Vikas Swarup, ekki var það til að endurnýja áhuga minn á bókum, bjóst einhvernvegin við meiru miðað við það sem maður hafði heyrt, líklega er það bara ég og minn smekkur Minnist nú á þetta vegna þess að þetta er fyrsta bókin sem ég les spjaldana á milli síðan í menntaskóla fyrir mörgum árum síðan.)

Árið 2007 var þegar ég lít til baka það besta hingað til og ég sem hélt að 2006 hefði verið skemmtilegt, mar er bra spenntur yfir 2008....

btw, þetta er síðasta færslan sem ég set inn hér, næsta verður birt í glænýju vóki, hvenær sem það verður nú....

Fréttir!!!
1.sep. 2007 | 10:05
Skrifað af Ó. | Er að hlusta á Mjaltarhljóð | Skráð undir Almennt
Stúlka Ólafsdóttir fæddist 29.08.07 kl.21.06 vóg hún 1160 gr(4.5 merkur) og mældist 36 cm. á hæð. Móður og barni heilsast vel

Stúlka olafsdóttir

Fleiri myndir hér

Fréttir!
7.maí 2007 | 07:08
Skrifað af Ó. | Er að hlusta á Umhverfishljóð úr miðbænum | Skráð undir Almennt
Brynhildur Ásta og Ólafur Brjann eiga von á erfingja um miðjan nóvember.

baby Ó

Um vókið

Vókið er vefsetur Ólafs Brjáns Ketilssonar. Ólafur (eða Ó eins og hann vil kalla sig hér í óþökk konu sinnar) býr í Reykjanesbæ ásamt eiginkonu og börnum.

Brosmildur,einlægur og misskilinn að eigin sögn, Ó hefur gaman að gönguferðum, tónlist og annari mannrækt.

Kannanir

Hvernig finnst þér nýja síðan?



Atburðir